 |
Varmidalur 13. september 2009
Helgina 12. – 13. sept var úr mörgu að velja fyrir áhugasama cavaliereigendur. Smáhundadagar í Garðheimum voru haldnir og ýmsar kynningar þar í gangi, cavalierganga á sunnudeginum og sýningarþjálfun á sunnudagskvöld. Af þessum sökum mættu óvenju fáir í lausagöngu með hundana sína sem að þessu sinni var í Varmadal við Mosfellsbæ. Ellefu hundar af öllum litum mættu þó glaðir og kátir með eigendum sínum sem létu ókræsilegt veðurútlit ekki hamla för. Gengið var frá bílastæði niður að á og síðan meðfram henni að ágætis áningastað. Þar var dregið upp nesti og sátu menn lengi að spjalli meðan hundar hnusuðu og léku sér. Rættist mjög úr veðri og í dalnum var lygnt, hlýtt og engin úrkoma, þó grasið væri vissulega blautt. Göngunefndin þakkar skemmtilegu fólki fyrir mætingu og minnir á næstu göngu sem verður sunnudaginn 18. október kl. 13.00, en þá ætlum við að Snorrastaðatjörnum á Reykjanesi.
Myndir í albúmi merktu Varmidalur sept. 2009
|