Aðventugangan í Sólheimakoti 2009

Fyrsti sunnudagur í aðventu, fallegur jólasnjór þekur jörðina og sólin skín.  Þannig tók Sólheimakot á móti cavaliereigendum sem brugðu sér í árlega aðventugöngu með tilheyrandi kaffi og kræsingum á eftir.  Eflaust hefur snjórinn dregið úr mörgum að fara þar sem ekki er rutt að Sólheimakoti en þó var greiðfært og ekki síst þegar vænir jeppar höfðu markað góð spor á veginn.  Allir voru í hátíðarskapi, fólk og hundar, salurinn dúkaður, kertaljós á borðum, kræsingar á hlaðborðinu og ilmandi kaffilykt.

Fyrst var gengið inn að ánni þar sem við sáum að framkvæmdir eru í gangi því verið er að leggja rör í jörð.  Hundarnir skemmtu sér konunglega í snjónum, hoppuðu og skoppuðu um eins og kanínur við mikinn hlátur hjá mannfólkinu.  Kaffiborðið á eftir var glæsilegt og var margt spjallað yfir kaffi og kræsingum.  Samkvæmt gestabókinni voru tuttugu og fjórir gestir mættir með nítján hunda. Göngunefndin þakkar fyrir góða mætingu og yndislega samverustund

Þetta var síðasta ganga þessa árs en næsta ganga er Nýjársgangan frá Ráðhúsi Reykjavíkur, sunnudaginn 3. janúar 2010, kl. 13.00, þar sem við göngum kringum Reykjavíkurtjörn.

 

 

Göngunefndin

 

Myndin er af ISCh Sperringgardens Chutney (Gorba) - fyrsta undaneldisrakka tegundarinnar.