Nýársgangan 3. janúar 2010
Sunnudaginn 3. janúar 2010 hópuðust Cavaliereigendur með hunda sína í árlega Nýársgöngu. Að venju safnaðist hópurinn saman við Ráðhúsið í Reykjavík og að þessu sinni lék veðrið við göngumenn, sól og logn en 6 stiga frost. Tjörnin var ísi lögð og margir léku sér á skautum meðan göngufólk og hundar gengu hringinn kringum Reykjavíkurtjörn. Margir létu sér nægja að ganga einn hring, sumir fóru tvo og nokkrir styttu sér leið yfir brúna á Skothúsvegi, hver eftir sinni getu. Þar sem nokkur hálka var á hluta af göngustígnum móts við Fríkirkjuna brugðu göngumenn á það ráð að skella sér á ísilagða Tjörnina og ganga þar. Hljómskálagarðurinn skartaði sínu fegursta og var gaman að sjá Norrænahúsið svo hulið dalalæðu svo einungis þakið stóð uppúr þokunni. Það er siður hjá Cavaliereigendum að skrifa í gestabók og voru það 58 manns sem skráðu nöfn sín og 36 hunda að þessu sinni en nokkrir bættust í hópinn síðar. Það kemur því ekki á óvart að skrúðgangan vakti mikla hrifningu borgarbúa sem voru að gefa öndunum og einnig þeirra sem léku listir sínar á skautum á ísnum.
Göngunefndin þakkar frábæra þátttöku og minnir á næstu göngu sem verður sunnudaginn 7. febrúar kl. 13.00 frá Digraneskirkju í Kópavogi.
|