Cavalierganga sunnudaginn 14. mars, Reynisvatn
Sunnudaginn 14. mars kl. 13.00 renndi bílafloti af stað af bílastæði Húsasmiðjunnar í Grafarholti. Ekið var að Reynisvatni, sem leynist ofarlega í hverfinu en auðvelt er að villast í öllum þeim hringtorgum sem aka þarf að vatninu. Þó byggðin sé komin býsna nærri vatninu á tvo vegu er enn óbyggt, skógi vaxið svæði við vatnið að austanverðu. Það voru sannarlega hraustir göngugarpar sem létu rigningu ekki stoppa sig af þennan sunnudaginn en skv. gestabókinni mættu 21 með 24 hunda. Umhverfis vatnið er malarstígur sem var á köflum orðinn torfær mönnum vegna leysinga en hundarnir létu það ekki á sig fá. Í ljós kom að ein fjölskyldan býr rétt við vatnið og gengur daglega um þetta svæði. Því var kjörið að bjóða þeim að taka að sér leiðsögn um svæðið og var það auðsótt mál. Hópurinn var nú leiddur umhverfis vatnið, inn í skóginn þar sem leyndust rjóður með leiktækjum, rólum og klifurgrindum. Einnig er þar að finna svæði þar sem hægt er að setjast niður með nesti eða yfir góðu spjalli. Við gengum líka upp frá vatninu að heiðinni og þar leyfðum við hundunum að hlaupa lausum í smá stund. Göngugestir voru á því að þarna væri ný perla sem kjörið er að setja inn á kortið sem skemmtilega viðbót við göngusvæði höfuðborgarinnar.
Næsta ganga verður sunnudagur 18. apríl kl 13:00 en þá ætlum við að ganga kringum Hvaleyrarvatn fyrir ofan Hafnarfjörð.
Myndir í albúmi merkt: Reynisvatn
|