Ársfundur deildarinnar var haldinn þriðjudaginn 23. mars 2010

Góð mæting var á fundinn eða um 35 manns.  Eftir venjubundin aðalfundarstörf flutti Helga Finnsdóttir, dýralæknir, mjög skemmtilegan og fróðlegan fyrirlestur um lóðarí, paranir, meðgöngu og fleira.  Hún svaraði síðan fyrirspurnum.

Þessi fundur var um leið 15 ára afmælisfundur deildarinnar og buðu kökumeistarar deildarinnar upp á frábærar veitingar sem voru gerð góð skil.

Stjórnin er óbreytt fyrir næsta starfsár.

Kosið var í eftirfarandi nefndir til 2ja ára:

Í göngunefnd eru: Elísabet Grettisdóttir, Kolbrún Þórlindsdóttir, Guðrún Lilja Rúnarsdóttir, Kristjana Daníelsdóttir, Arna Sif Kærnested, Guðrún Birna Jörgensen og Anna Björg Jónsdóttir

Í básanefnd eru: Kolbrún Þórlindsdóttir, Ásta Björg Guðjónsdóttir, Gerður Steinarsdóttir og Guðrún Birna Jörgensen

Í kynningarnefnd eru: Ingibjörg Halldórsdóttir, Bjarney Sigurðardóttir, Elísabet Grettisdóttir, Hrefna Hrólfsdóttir og María Tómasdóttir

Hægt er að lesa ársskýrsluna undir Deildin - ársskýrslur/fundarg.